um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði að beina orðum mínum til hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés en ég verð eiginlega að sleppa því því að oflátungsháttur hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar er með þeim hætti að ég verð að nefna það. Það er ekki góður bragur á því starfi sem virðist vera í gangi í hv. nefnd ef þetta er afstaða þess manns sem hér stærir sig af því að vera vondi kallinn í nefndinni. Hann virðist hróðugur yfir því að bera þann titil. Ég verð að viðurkenna að mér er hálfbrugðið. Ég skora á hv. þm. Ólaf Þór Gunnarsson að gera bragarbót hvað það varðar, því að það er algjörlega fyrir neðan allar hellur. (GBS: Heyr, heyr.)