148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[17:59]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf):

Virðulegi forseti. Ekki er allt sem sýnist. Af hverju ertu með svona stór augu, amma mín? Til að ég geti séð þig betur. Af hverju ertu með svona stór eyru? Til að ég geti heyrt betur í þér. Af hverju ertu með svona stóran munn? Það er til að geta gleypt þig, elskan mín. Ekki er allt sem sýnist.

Stjórnin talaði ljúflega, eða eigum við að segja digurbarkalega, um samvinnu og samstarf, efla Alþingi, efla traust á Alþingi, við leyfum ykkur að setja þrjú mál fram, hverjum og einum. Stundum var víðtæk samvinna um þessi mál, víðtæk sátt um málin, góð mál mörg hver. En hver er svo raunin? Af hverju ertu með svona stóran munn, amma?