um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Mér þykir leitt að hafa séð á eftir hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni héðan út úr salnum, ég vona að það sé ekki út af því að ég boðaði komu mína í þennan stól. En ég ætlaði að benda hv. þingmanni á að það er ekki okkar þingmanna að ákveða á hvaða málum fólk hefur áhuga, á hvaða málum kjósendur okkar hafa áhuga. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Og það er ekki á okkar valdi að stýra því hvernig fólk á Íslandi hugsar. Við erum að vinna fyrir það fólk og eigum að gera það af heilindum. Það vill svo til, hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson, að ekki er mjög langt síðan gerð var skoðanakönnun meðal höfuðborgarbúa um það hvar framtíðarathvarf þjóðarsjúkrahússins ætti að vera og rífur meiri hluti lét í ljós þá skoðun að það ætti ekki að vera við Hringbraut. Eigum við að hunsa þann vilja? Er það þess vegna sem hv. þingmaður situr á þessari tillögu í nefndinni? Hvaða hagsmuni hefur hann að verja í þessu máli, þessi hv. þingmaður?
Ég segi aftur: (Forseti hringir.) Það er ekki á okkar færi, okkar þingmanna, að gera fólki upp á hverju það hefur áhuga eða ekki. Það að móðga kjósendur svona er dónaskapur.