um fundarstjórn.
Forseti. Þetta hefur nú verið býsna róleg umræða. Ég lýsti ánægju minni með störf allsherjar- og menntamálanefndar og lipra og góða stjórn á henni. Formaðurinn hefur nú vikið úr sal en er kannski væntanlegur, en ég er svo heppinn að hinn fulltrúi stjórnarinnar í stjórn nefndarinnar er hér. Mig langar til að segja að ég vona að þau rísi undir mínu hrósi. Nú eru liðnir um níu klukkutímar síðan ég óskaði eftir úttektarfundi í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og tilskilinn fjöldi nefndarmanna hefur tekið undir ósk mína, þannig að ég reikna fastlega með því, af því að ég hef séð að þau hafa verið að hlusta ágætlega og grúft sig yfir tölvur sínar, að þau séu að semja fundarboðið og boða fund í nefndinni.