148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

afbrigði um dagskrármál.

[18:05]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Ég ræddi það áðan að það er rosalega slæmt þegar tveimur mjög ólíkum reglum er haldið úti, annarri fyrir stjórnarandstöðu og hinni fyrir stjórnarmeirihlutann, sér í lagi ríkisstjórnina, að málum sem koma seint fram sé leyft að flæða í gegn á einhverju samþykki í staðinn fyrir að standa með þinginu og tryggja að mál fái eðlilega meðferð. Í dag eru mál á dagskrá sem hafa verið tilbúin í meira en ár inni í ráðuneyti en samt koma þau fram með afbrigðum, bara vegna þess að ráðherra ber ekki nægilega virðingu fyrir þinginu til að koma fram með þau á réttum tíma.

Þetta eru algjörlega óásættanleg vinnubrögð og það á að stoppa svona lagað í fæðingu.