lengd þingfundar.
Herra forseti. Ég er á móti því að við setjum hér á kvöldfund til þess að ræða mál frá ríkisstjórninni sem koma allt of seint inn. Við í stjórnarandstöðunni vöruðum við einmitt þessum aðstæðum mörgum sinnum hér í upphafi þessa þings, að þetta gæti gerst. Að við myndum ekki una því að vera síðan fram á nætur að ræða stjórnarþingmál sem koma allt of seint inn.
Ég hvet þingmenn til þess að bera meiri virðingu fyrir störfum þingsins og hafna þessum vinnubrögðum og ýta á rauða takkann þegar atkvæðagreiðslan fer hér fram um lengdan þingfund núna daginn fyrir hálfsmánaðarhlé. Þetta er hneyksli.