lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Miðað við umræðuna sem átt hefur sér stað í dag um það hvernig og á hvaða forsendum skuli koma málum úr nefnd þá lít ég svo á að ágreiningur sé á þingi um það hvernig fara eigi með málin, ekki bara efnislega, heldur líka hvernig við veitum þeim brautargengi eða stöðvum þau, sem gerist ef svo ber undir. Þetta eru ný vinnubrögð af hálfu meiri hlutans frá því sem ég þekkti frá þarsíðasta kjörtímabili. Þar var svona brögðum ekki beitt.
Með hliðsjón af þessari stöðu greiði ég atkvæði gegn því að lengja þingfund. Venjulega greiði ég atkvæði með því, þ.e. ef ég get sjálfur verið á fundi um kvöldið, vegna þess að ég vil ekki hafa aðra fyrir mig á kvöldin og jafnvel næturnar, ef ég er reiðubúinn til að leggja mitt af mörkum og er í aðstöðu til þess. En í ljósi þeirrar stöðu sem við höfum rætt hér í dag get ég ekki verið hlynntur því að lengja þingfund til þess að veita þeim málum brautargengi sem eru á dagskrá þingsins í dag. (Forseti hringir.) Ég legg til að þegar þing kemur aftur saman eftir hlé ræðum við heiðarlega og einlæglega saman (Forseti hringir.) um hvaða viðmið við ætlum að hafa, hvað okkur finnst boðlegt og hvar línurnar liggja í vinnubrögðunum þegar kemur að framgangi mála. Kannski er kominn tími til. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)