148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

lengd þingfundar.

[18:13]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hlýtur að taka fram þegar rætt er um vald hans til þess að leggja fyrir salinn tillögu um lengd þingfundar að þegar undirbúið var þinghald þessarar viku og það rætt á fundum með formönnum þingflokka og í forsætisnefnd á mánudag var gengið út frá lengdum þingfundi. Var ekki hreyft andmælum við því. (Gripið fram í.)

Forseti leggur fram tillögu sína í samræmi við það sem hann boðaði á samráðsfundum með formönnum þingflokka og í forsætisnefnd á mánudaginn var. (Gripið fram í.) Rétt skal vera rétt.