lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Jón Þór Ólafsson getur farið betur yfir það þar sem hann veit hvað gerðist innan þeirrar nefndar. Kannski hefur ýmislegt gerst síðan á mánudag sem hefur breytt þessum aðstæðum. Ég væri alveg til í að hafa lengri þingfund ef við værum að klára mál sem eru komin langt inn í 3. umr., bara byrja á þeim í kvöld og þá gætum við alveg rætt það að hafa áframhaldandi og lengri þingfund. Miðað við núverandi dagskrá sé ég enga ástæðu fyrir því að hafa lengri þingfund, það gerist ekki neitt.