148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

lengd þingfundar.

[18:14]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við nefndum það áður að það er ekkert ætlað samþykki hvort þingflokkur Pírata samþykki það sem forseti leggur til. Þetta höfum við rætt í þessum ræðustól. Ég nefndi þetta líka sérstaklega á forsætisnefndarfundi þegar við töluðum um að það er ekki ætlað samþykki frá þingflokki Pírata um hvort lengja megi þingfund. Það þarf alla þingflokka til að samþykkja það. Þetta höfum við rætt í okkar þingflokki og ég tilkynnti hæstv. forseta Alþingis það sérstaklega á forsætisnefndarfundi á mánudaginn. Rétt skal vera rétt.