148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:27]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að biðja hv. þm. Ólaf Þór Gunnarsson um að endurskoða hug sinn til þess máls sem við ræðum hér, staðarvalsgreiningu á nýju þjóðarsjúkrahúsi. Það er, held ég, með eindæmum, í það minnsta man ég ekki eftir því frá 2009, að þingmaður hafi staðið í þessum ræðustól með jafn óbilgjarna yfirlýsingu og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson um að það skipti engu máli hvernig málið er í raun; hann ætli sér bara að stoppa það af því hann telji að þjóðin sé á móti því. Það hefur hins vegar verið bent á að það sé einfaldlega ekki þannig og að kannanir sýni allt annað. Við hljótum að hvetja til þess að gert verði hlé á þessum fundi þannig að nefndin geti komið saman og afgreitt málið. Hv. þingmenn sem hafa verið að stoppa það, og sér í lagi hv. þingmaður sem lýsti sig hér sem helsta hvatamann og andstæðing þessa máls, og stærði sig af því að stoppa málið, geta þá breytt skoðun sinni og klárað málið í nefndinni. Ég geri mér svo sem ekki sérstaklega vonir um að málið komist á dagskrá í kvöld, hins vegar mætti vel ræða það eftir hlé. Þetta er nú mín ábending, hæstv. forseti.