148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:28]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Forseti þingsins hefur ákveðið vald til að kalla mál úr nefndum. Ég skoðaði þetta á sínum tíma til að athuga hvort nefndarformenn hefðu það raunverulega vald að stöðva mál, sem þeir hafa ekki. Forseti getur sagt: Málið er útrætt eða málið er nógu vel upplýst, nú vil ég fá málið út. Ég vil nefna þetta vald og tala um það. Við viljum ekki lenda í því að ef mál er enn í umræðu, minni hlutinn enn að kalla eftir upplýsingum í málinu, sem á ekki við um þau mál sem búið er að klára umræðu um og vinna nefndarálit um, og við erum að tala um að ekki sé verið að hleypa málum úr nefndum þá.

Við erum að tala um að ekki sé verið að hleypa málum úr nefndum áður en mál er útrætt, áður en þau eru fullupplýst eins og t.d. fjármálaáætlun. Nú er verið að draga það að gefa okkur fullnægjandi upplýsingar þannig að við getum tekið upplýsta afstöðu í þeim málum — á þá samt sem áður að taka málin úr nefnd? Það er hægt að stöðva mál í nefnd nema við viljum ræða málin áður en þau verða afgreidd. Þarf þá að stöðva umræðuna áður en þau eru samþykkt úr nefndinni? Ætlar forseti að kalla eftir því að fá mál úr nefnd á einhverjum tilteknum tíma? Við skulum horfa til þeirra valdheimilda sem eru til staðar og mögulegrar misnotkunar á þeim eftir því sem líður nær lokum þingsins.