um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Mig langar til að skora á hv. þm. Ólaf Þór Gunnarsson að hann upplýsi þingheim um það hvaða könnun eða hvaða upplýsingar liggja til grundvallar þeim orðum sem hann hafði uppi hér áðan, um að þjóðin hefði engan áhuga á framtíðarstaðsetningu þjóðarsjúkrahúss. Líkt og ég gat um í ræðu minni, í þessu innskoti mínu áðan, vill ríflegur meiri hluti höfuðborgarbúa að nýtt þjóðarsjúkrahús rísi á nýjum stað en ekki við Hringbraut. Ég þori að fullyrða að ef öll þjóðin hefði verið spurð hefði þetta verið enn meira afgerandi. Ef hún er bara byggð á hugboði hv. þingmanns, þessi einkunn sem hann gaf kjósendum hér áðan, þá hlýtur hún að byggjast á hroka og yfirgangi.