um fundarstjórn.
Herra forseti. Stundum finnst manni eins og þingheimur sé að tala svolítið út í tómið. Við vorum að ræða í eina og hálfa klukkustund um fundarstjórn forseta. Við beindum ítrekað spurningum til forseta Alþingis, sem situr hér fyrir aftan okkur, og fáum lítil sem engin svör og síðan er bara haldið áfram. Það er eins og það sé ætlun forseta að klára. Hver þingmaður má koma tvisvar sinnum í eina mínútu, undir liðnum fundarstjórn forseta, og það er eins og planið sé bara að keyra okkur út, leyfa okkur að blása, og síðan heldur þetta bara áfram. Mér finnst þetta ekki vinnubrögð sem við eigum að stunda. Það kemur á óvart að hæstv. forseti beiti þessum vinnubrögðum sem ég veit að hann hefur margoft gagnrýnt hér á fyrri tíð.
Ég vil taka undir orð hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur, það þarf að funda hér um þingstörfin. Það gengur ekki að við getum ekki fengið svör um það hvernig framhald þingstarfa verður. Verðum við til miðnættis? Á miðnætti hefst lögbundinn frídagur kirkjunnar og samfélagsins. Verðum við lengur en það? Hvernig má þetta vera?
Ég vil endilega hvetja (Forseti hringir.) hæstv. forseta til að eiga þetta samtal við þingflokksformenn eða formenn flokkanna. Það sjá allir að þessi vinnubrögð eru ekki þinginu til sóma.