um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Mér finnst að eftir þá umræðu sem hefur átt sér stað hér í dag, um fundarstjórn forseta, að það verði að ræða milli þingflokksformanna og forseta hvernig þetta eigi að vera. Ég átta mig á því að virðulegur forseti telur nefndirnar sjálfstæðar í störfum sínum og það er gott og blessað. En það þarf að komast á hreint hvernig vinnulagið á að vera. Meiri hlutinn, ríkisstjórnin öllu heldur, talaði um það á sínum tíma að efla starf Alþingis. Ef þetta er aukavopn sem meiri hlutinn ætlar að fara að nota, að hleypa ekki málum þingmanna úr nefnd minni hlutans nema öll nefndin sé á sameinuðu nefndaráliti, er verið að herða það ægivald sem ríkisstjórnarmeirihlutinn hefur yfir þingstörfunum hverju sinni. Það er saga til næsta bæjar. Það er mikilvægt að við ræðum það. Ég tek undir þá tillögu að gert verði hlé á þingfundi og forseti hittist með þingflokksformönnum að ræða þessi mál.
(Forseti (SJS): Enn eru fjórir, fimm á mælendaskrá sem óska eftir að ræða fundarstjórn forseta. Forseti hyggst bregðast lítillega við því sem að honum hefur verið beint þegar sú mælendaskrá er tæmd.)