148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:40]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta er nokkur vandi á höndum, hvort hann á að stöðva umræður og fara að svara, eða hvort hann geri það þegar mælendaskrá er tæmd af því að þingmenn hafa almennt rétt til að tala tvisvar og geta þá brugðist við svörum forseta. Ég vil bara virða það að menn biðja um orðið og vilja ræða fundarstjórn forseta.