um fundarstjórn.
Forseti. Mig langar bara til þess að koma hér upp og segja að ég er alveg til í að boða fund í velferðarnefnd til að afgreiða þingmannamálin sem eru þar tilbúin. Það eru fjögur þingmannamál tilbúin. Þrjú þeirra eru frá minni hlutanum. Þar er staðarvalsgreiningin á Landspítalanum. Þar er afnám tekjuskerðinga fyrir ellilífeyrisþega og borgaralaunin. Ég veit að framsögumenn þessara mála vilja fá málin úr nefnd. Ég er alveg tilbúin að afgreiða þau úr nefnd. Mér skildist með fjórða málið, sem er mál Framsóknar, að ekki væri vilji til þess að afgreiða það úr nefnd í dag, en mögulega er það það. En ég vil bara láta vita að það er vilji fyrir því hjá formanni velferðarnefndar að afgreiða þessi mál úr nefnd. Ég legg til að þingflokksformenn hitti forseta og við ræðum hvort ekki sé hægt að semja um þetta, fá þessi mál í lýðræðislega umræðu hér á þingi.