148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:44]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill þá segja á þessu stigi mála, áður en hann fer að gefa mönnum orðið í seinna sinn til að ræða fundarstjórn, að nú styttist í að hlé verði hvort sem er gert á þessum fundi, kvöldarmatarhlé. Það myndi gleðja forseta og forseti telur gagnlegt að formenn þingflokka og þingforseti setjist þá saman yfir málin. Þannig að klukkan sjö í síðasta lagi myndum við gera hlé á þessum fundi til hálfátta.

Í öðru lagi vill forseti segja að það sem hér hefur borið mikið á góma, í umræðum um fundarstjórn forseta í dag, eru fyrst og fremst störf nefnda. Eins og reyndar kom fram í máli sumra þingmanna eru nefndir algjörlega sjálfstæðar í störfum sínum og almennt er vettvangurinn til að ræða vinnu þeirra fundir í nefndinni. Forseti gerir að sjálfsögðu ekki athugasemdir við það þó að menn vilji ræða hér í salnum ef þeir eru óánægðir með eitthvað sem telst til almennra þátta í störfum nefndanna.

En forseti hlýtur að segja, eftir umræður dagsins, að allt of mikil brögð eru að því að ekki sé með eðlilegum hætti fjallað um orð og afstöðu annarra þingmanna á lokuðum fundum í þingnefndum. Forseti minnir á að það er hin almenna regla að menn, út af lokuðum fundum, greini eingöngu frá eigin afstöðu og eigin orðum en taki sér ekki það hlutverk að segja frá afstöðu annarra eða bera orð þeirra út af þeim fundum. Fundir nefnda eru lokaðir nema annað sé sérstaklega ákveðið og þeir opnaðir, sem ég veit að margir hafa áhuga á að sé gert í ríkari mæli. En þannig er þetta og hin gamla góða regla sem forseta var ungum kennt í þessum efnum er einföld, hún er svona: Menn greina frá því sem þeir segja sjálfir og þeirri afstöðu sem þeir hafa, en það er ekki þeirra hlutverk að flytja öðrum afstöðu annarra þingmanna og orð annarra þingmanna sem falla á lokuðum fundum í þingnefnd. Endir þeirrar ræðu.