148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:46]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Í ljósi þess sem virðulegi forseti var að nefna hér, um það sem kemur fram á nefndafundum, þá finnst mér meira og meira kvartað yfir því að talað sé um hluti sem meinbugur er á. Einhvern veginn í ósköpunum verða þingmenn að geta tjáð sig við einhvern sem hefur eitthvað um það að segja hvernig mál ganga. Ef það er ekki forseti sem stjórnar neinu um nefndirnar og ekki má tala um það sem gerist á nefndafundum, hvernig í ósköpunum eigum við þá að bregðast við vandamálum eins og þeim sem hér var lýst í dag? Hefðum við átt að þegja? Varla, er það? Við þurfum að geta talað um það sem er að. Mér finnst hún vera að aukast almennt, ekki bara í þessu máli, krafan um að ekki megi tala um nokkurn skapaðan hlut.

Ég boðaði mig hingað upp í fundarstjórn til að benda á að á þarsíðasta kjörtímabili, þegar sá vandvirki, nákvæmi og skipulagði maður Einar K. Guðfinnsson var forseti, mælti hann alveg á milli manna í fundarstjórn forseta. Það er alvanalegt. Það er ekkert sem (Forseti hringir.) hindrar það. Ég sé ekki hvernig í ósköpunum það sparar tíma, ég sé þvert á móti hvernig það sóar tíma, að bíða þar til öll runan er komin og (Forseti hringir.) svara síðan. Það væri miklu betra fyrir alla að það væri bara svarað strax.

Mig langar að spyrja virðulegan forseta hvers vegna hann kýs að hafa þennan háttinn á.