148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja virðulegan forseta um þann trúnað sem talað er um hér. Ég sagði á dögunum að ákveðinn mótþrói hefði verið gegn máli í nefndum, ákveðin tregða við að bregðast við upplýsingabeiðni. Það er ekki verið að vitna beint í orð einhvers. Þar er ég að lýsa reynslu minni og tilfinningu fyrir því hvernig málin ganga fyrir sig. Ég get rökstutt það mjög vel hvernig ég kemst að þeirri niðurstöðu að nota þessa lýsingu. En ég er vissulega að lýsa ákveðinni vinnu sem fer fram í nefndum. Mig langar að leita til forseta til að átta mig á því hvort það sé of langt gengið því að ég fékk ávítur þess efnis að þetta væri trúnaðarbrot í nefnd. Ég vildi leita til forseta og fá að vita hvað er rétt í þessu máli.