um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hvað varðar trúnað í nefndum hefur skilningur minn verið sá að óheimilt væri að vitna beint, orðrétt, í menn, en að sjálfsögðu þurfa menn að geta rætt um það sem fram fer í nefndum. Í því tilviki sem ég nefndi áðan, í tilviki málsins sem varðar staðarval fyrir Landspítalann, kom nefndarmaður stjórnarliðsins hingað upp og lýsti afstöðu sinni til málsins og hvernig hann hefur nálgast það í nefndinni mjög afdráttarlaust, hann lýsti því sjálfur, hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson.
Ég velti fyrir mér, virðulegur forseti, hvort forseti sé ekki sammála mér um að það hljóti að teljast brýnt mál. Nú er verið að reyna að drífa í því að fara í útboð vegna framkvæmdanna, bara á næstu vikum, svo að þingið hlýtur að vilja afgreiða þetta mál sem allra fyrst áður en menn stíga næstu skref við Hringbraut.