148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vildi fá að koma örstutt upp og segja frá þeirri upplifun minni að nú hefur hæstv. forseti sagt að menn þurfi að fara varlega í að tjá sig um það sem á sér stað í nefndum. Miðað við það hvernig hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson tjáði sig hér áðan finnst mér með fullkomnum ólíkindum hvað nefndarmenn í þeirri nefnd hafa talað varlega um framgöngu hans í nefndinni. Ég vildi bara að þetta kæmi fram hér.