um fundarstjórn.
Herra forseti. Þetta eru gagnlegustu lærdómstímarnir á þingi yfirleitt.
Það segir í 19. gr. laga um þingsköp, með leyfi forseta:
„Óheimilt er að vitna til orða nefndarmanna eða gesta sem falla á lokuðum nefndarfundi nema með leyfi viðkomandi …“
Þar segir að ekki megi vitna beint til orða. Ég var í forsætisnefnd einu sinni og ónefndur starfsmaður, ég ætla ekki að vitna um hver það var, benti á að það væri eitthvað til sem héti „chatham house rules“. Í því tilfelli, ég finn það hér, segir að á fundum sem eru undir þeim reglum sé öllum viðkomandi frjálst að nota upplýsingarnar sem koma fram, en þeir benda ekki á hver það er í rauninni sem til hafði þessar upplýsingar. Þetta er þrengra en segir í lögum um þingsköp. Þar segir ekkert um að ekki megi vitna til afstöðu einhvers. Við gerum það með alla gesti sem koma fyrir nefndina. Við vitnum í þá og segjum: Afstaða þeirra aðila sem höfnuðu þessu og komu fyrir nefndina var þessi og þessi og þessi.
Það er ekkert sem bannar okkur að vitna til afstöðu einhverra annarra þingmanna (Forseti hringir.) og ef sú afstaða er ekki skýr og hvernig menn eru að beita sér (Forseti hringir.) í málum og beita sér fyrir málsmeðferð þá er það (Forseti hringir.) bara mjög mikill lýðræðishalli á það að landsmenn viti hvernig þeirra kjörnu (Forseti hringir.) fulltrúar starfa, (Forseti hringir.) jafnvel að misfara með vald sitt. Þannig að það er ekkert sem bannar okkur þetta.