148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:03]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Með bréfi, dagsettu 23. maí 2018, hefur forseti óskað eftir því, samanber 8. tölulið 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um eftirfarandi skýrslur Ríkisendurskoðunar: Stjórnsýsla fornleifaverndar; Samningar ráðuneyta og stofnana þeirra; Ríkisábyrgðir og endurlán ríkissjóðs og Kísilverksmiðja Sameinaðs Sílikons hf. —Aðkoma og eftirlit stjórnvalda.