Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 237, um innflutning á hráum og ógerilsneyddum matvælum, frá Bjarna Jónssyni, á þskj. 837, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni, og á þskj. 384, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni. Frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 836, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni. Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 810, um umhverfisvænar veiðar, frá Álfheiði Eymarsdóttur. Frá félags- og jafnréttismálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 793, um fjölkerfameðferð við hegðunarvanda, frá Halldóru Mogensen, á þskj. 841, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni. Frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 838, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni. Loks frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 834, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni.