148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

svar við fyrirspurn.

[15:19]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það er rosalega áhugavert þegar ráðherrar kvarta undan fyrirspurnum. En það er ósatt sem hefur verið sagt hér. Það er einfaldlega þannig að á 144. þingi var heildarfjöldi fyrirspurna 356, bara til að hafa það á hreinu, sem sagt fleiri en núna. (Gripið fram í.) Mjög margar af þeim fyrirspurnum sem hafa verið lagðar fram á þessu þingi eru afrit af sömu fyrirspurn, sem sagt ein fyrirspurn lögð fyrir marga ráðherra. Þær telja í raun rúmlega tífalt, fyrirspurnum sem eru undir fækkar við það. (Gripið fram í.) Það er mismunandi hvernig vinnuálagið dreifist á þær fyrirspurnir, vissulega, en svör við mörgum af þeim sem ég hef fengið eru einfalt afrit af fyrstu fyrirspurninni. Það hefur verið hægt að samnýta vinnuna við að svara þeim fyrirspurnum. Til að byrja með vil ég segja: Nei, þetta er ekki það þing þar sem flestar fyrirspurnir hafa verið lagðar fram. Það gæti vel verið að þeim fjölgi enn, þeim þarf þá að fjölga um 40, sem er svo sem slatti.