148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

bætt kjör hinna lægst launuðu.

[15:34]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þetta furðulega svar. Ég get ekki annað sagt. Talað er um að ekki eigi að mismuna fólki og færa skattbyrði meira á einhverja ákveðna þjóðfélagshópa frekar en aðra. Þá er náttúrlega verið að tala um skattbyrði á þá sem hafa efni á að greiða skatta. Er eðlilegra að við skattleggjum fátækt? Er eðlilegra að bjóða okkur að varla sé hægt að reka ríkið öðruvísi en að fátækt fólk haldi okkur uppi? Með því að skattleggja fátækt?

Hér er talað er um atvinnuleysisbætur. Jú, allt í lagi. Það er alveg frábært ef við eigum svona mikið af peningum að við getum sett 2 eða 4 eða 5 milljarða í þann sjóð þegar nánast ekkert atvinnuleysi er í landinu. Er það ekki einhver öfug forgangsröðun? Gætum við ekki nýtt fjármagnið pínulítið öðruvísi?

Ég segi bara þetta: Við erum að fara í sumarfrí núna. Við vitum nákvæmlega út frá öllum kortlagningum, út frá öllum skattskýrslum, (Forseti hringir.) að 9,1% barna líður hér skort. Við þurfum ekkert samtal. Það þarf bara úrbætur, aðgerðir, og þær strax.