úttekt nefndar á barnaverndarmálum.
Virðulegi forseti. Forsætisráðuneytið tilkynnti á vefsíðu sinni þann 2. maí sl.:
„Að tillögu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hefur verið ákveðið að fram fari óháð úttekt á tilteknum málum á sviði barnaverndar hér á landi, sem verið hafa til umfjöllunar í velferðarráðuneytinu og hjá velferðarnefnd Alþingis.“
Umrædd mál snúa, eins og við vitum, að málsmeðferð velferðarráðuneytisins og hæstv. velferðarráðherra á kvörtunum sem bárust frá barnaverndarnefndum vegna starfa Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, og frambjóðanda Íslands til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, og meintra óeðlilegra afskipta Braga af störfum nefndanna og af einstökum barnaverndarmálum.
Herra forseti. Á vefmiðli Stundarinnar í dag kemur fram að velferðarráðuneytið annist verksamningsgerð og semji við úttektaraðila, skilgreini verkefnið og beri ábyrgð á framkvæmd þess. Áður en lengra er haldið vil ég segja að ég hef enga ástæðu til að efast um heilindi þeirra einstaklinga sem fengnir hafa verið til að vinna úttektina, en ég vil þó spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort henni finnist það heiðarleg framsetning af hennar hálfu að svara fyrirspurn minni um skipan nefndarinnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma þann 2. maí á þennan veg, með leyfi forseta:
„Það er hins vegar skylda mín sem forsætisráðherra að nýta þær heimildir sem ráðherrar hafa í lögum um Stjórnarráðið til þess að geta kallað til óháða sérfræðinga, eins og ég hef nú gert, til þess að láta slíkt mat fara fram.“
Í sömu ræðu vísaði ráðherra einnig í nauðsyn þess að nýta slíkar heimildir til að tryggja að þessi mál, barnaverndarmál, væru hafin yfir allan vafa. Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Finnst hæstv. ráðherra þetta heiðarleg framsetning af sinni hálfu? Í öðru lagi: Telur hæstv. ráðherra að niðurstaða úttektar sem velferðarráðuneytið verkstýrir um sín eigin verk geti verið hafin yfir allan vafa?