148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

úttekt nefndar á barnaverndarmálum.

[15:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Enn hef ég áhyggjur. Áhyggjur mínar snúa einfaldlega að því — og nú spyr ég um heiðarlega framsetningu vegna þess að af orðum hæstv. ráðherra mátti skilja að það væri á ábyrgð hæstv. forsætisráðherra að skipa þessa óháðu úttektaraðila og að í stað þess að þeir ynnu á verksamningi við velferðarráðuneytið myndu þeir vinna á verksamningi við forsætisráðuneytið, eða a.m.k. ótengdir velferðarráðuneytinu. Ég leyfi mér að endurtaka síðari spurningu mína við hæstv. forsætisráðherra. Finnst hæstv. forsætisráðherra eðlilegt að niðurstaða úttektar sem velferðarráðuneytið verkstýrir verði hafin yfir allan vafa ef það snýr að störfum velferðarráðuneytisins sjálfs? Er það trúverðugt?