úttekt nefndar á barnaverndarmálum.
Herra forseti. Það kom fram í máli mínu við fyrri fyrirspurn hv. þingmanns að ég hefði kallað þessa sérfræðinga til. Það er sannleikanum samkvæmt. Það er það sem ég sagði við hv. þingmann þá og get staðfest við hann nú.
Það var sömuleiðis ég sem lagði upp línur verkefnisins, þ.e. að fara yrði yfir öll gögn og málsmeðferð þeirra stjórnvalda sem um ræddi. Það liggur hins vegar fyrir að þau gögn liggja fyrir í velferðarráðuneytinu. Samkvæmt stjórnarráðslögunum er þetta á málasviði velferðarráðuneytisins. Það liggur líka fyrir að það var ósk hæstv. félags- og jafnréttismálaráðherra að hann myndi hvorki stýra verkefninu né því hvaða sérfræðingar yrðu fengnir til verksins.
En, já, það er rétt, þetta mun fara úr bókum velferðarráðuneytisins í gegnum ráðstöfunarfé ríkisstjórnar. Ef hv. þingmaður hefur áhyggjur af því, eins og ég sagði áðan, að þeir sérfræðingar muni ekki sinna þessu verkefni af heilindum vegna þessa get ég alveg fullvissað hann um (Forseti hringir.) að ég hef enga ástæðu til að ætla það.