stuðningur við borgarlínu.
Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra ágætlega skýr svör. Það er ánægjulegt að heyra að verkefnið nýtur óskoraðs stuðnings ríkisstjórnarinnar. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir nýja meiri hluta í sveitarstjórnum hér á höfuðborgarsvæðinu að hafa það skýra veganesti frá ríkisstjórninni.
Það er alveg rétt hjá hæstv. forsætisráðherra að mikilvægt er að horfa líka til annarra samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að það sé sameiginlegur áhugi flestra sveitarfélaganna hér í það minnsta að bæta almenningssamgöngur og ekki síður almennt flæði umferðar á höfuðborgarsvæðinu.
Þá hlýt ég að spyrja: Stendur til að taka upp það samkomulag? Það er ljóst að ekki hefur verið nokkur forgangsröðun í framlögum til samgöngumála hér á höfuðborgarsvæðinu hjá núverandi samgönguráðherra eða forverum hans og m.a. byggt á því samkomulagi sem gert var við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að leggja áherslu á almenningssamgöngur til tíu ára. Stendur þá til, samhliða viðræðum um (Forseti hringir.) framlög til uppbyggingar borgarlínu, að taka upp það samkomulag að jafnframt (Forseti hringir.) verði lögð aukin áhersla á almennar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu?