stuðningur við borgarlínu.
Herra forseti. Það sem ég hef sagt hér er nákvæmlega það sama og komið hefur fram hjá bæði hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. samgönguráðherra sem voru spurðir sérstaklega um þetta í umræðum um fjármálaáætlun. Við erum komin á þann stað, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um heildarmyndina, að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru búin að setja niður sína forgangsröðun hvað það varðar í samráði við Vegagerðina og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Næstu skref eru þá væntanlega þau að setjast aftur niður.
Eins og komið hefur fram hjá hæstv. fjármálaráðherra hefur ekkert sveitarfélaganna gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun sinni, ekki frekar en ríkið. Það er vegna þess að við erum í raun og veru ekki byrjuð að ræða fjármögnunina, hvernig hún ætti að dreifast milli sveitarfélaga og ríkis. Það verður að vera í samhengi við aðrar samgöngubætur því að við vitum öll að þörfin er mjög brýn.
Ég hef hins vegar lagt áherslu á það að við skipulag samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu verðum við að hafa langtímasýn. Við eigum ekki að vera í því að leysa vanda dagsins (Forseti hringir.) í dag án þess að hugsa um morgundaginn. Við verðum að gera ráð fyrir fjölguninni og við verðum að hafa loftslagsmarkmiðin sem eitt af okkar leiðarljósum í þeim framkvæmdum sem ráðist verður í.