hreyfing og svefn grunnskólabarna.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem er mjög mikilvæg því að hún fær okkur til þess að beina sjónum okkar að breyttum lífsstíl og samfélagsbreytingum sem við búum við. Auðvitað eru þessar niðurstöður eru mjög sláandi og mikið umhugsunarefni fyrir samfélag okkar og hvaða breytingar eru að eiga sér stað.
Hins vegar vil ég benda á rannsókn Viðars Halldórssonar, sem framkvæmd var af Rannsóknum og greiningu, sýnir okkur að á seinni hluta 20. aldar hefur átt sér stað hálfgerð íþróttavæðing samfélagsins. Frá árunum 1992–2014 hefur drengjum fjölgað sem æfa íþróttir, orðið hefur tvöföldun á íþróttaiðkun hjá þeim og þreföldun hjá ungum stúlkum, þannig að átt hefur sér stað mikil breyting. Við erum dugleg að hreyfa okkur. Þessi rannsókn er þannig að við getum ekki litið fram hjá henni.
Ég vil upplýsa hv. þingmann um að ég hef mikinn áhuga á því að stjórnvöld í samstarfi við íþróttafélögin komi betur til móts við hóp ungmenna sem ekki hreyfa sig nægilega mikið. Ég vil einkum nefna tvennt; í fyrsta lagi að fjölga þarf íþróttatímum í aðalnámskrá. Í aðalnámskrá grunnskóla er miðað við þrjá tíma á viku í íþróttir, þar af er einn tími ætlaður í sundkennslu. Með tilliti til aðalnámskrár grunnskóla er ekkert því til fyrirstöðu að tekin sé ákvörðun um að bjóða nemendum upp á fleiri tíma í skólaíþróttum. Ég er tilbúin til að eiga samtal og leiða viðræður við sveitarfélögin um að auka hreyfingu grunnskólabarna og koma því fyrir í aðalnámskrá.
Í öðru lagi vil ég nefna að ég tel að sóknarfæri séu í því að samþætta skóladaginn enn frekar við íþróttastarf. Íþróttahreyfingin býður nú þegar grunnskólabörnum upp á þátttöku í fjölbreyttum íþróttagreinum, oft eftir að skóladegi lýkur. Hægt væri að samþætta skóladaginn betur íþrótta- og frístundastarfi. Hins vegar þarf auðvitað að taka tillit til þess að margir þjálfarar íþróttafélaganna eru í öðrum störfum samhliða því að starfa við þjálfun eftir að hefðbundnum vinnudegi lýkur. Hér þurfa sveitarfélögin og skólayfirvöld að ræða betur saman um skipulag og hvernig koma megi betur að hreyfingu. Ég er reiðubúin að sama skapi til að eiga það samtal við sveitarfélögin og íþróttafélögin.
Þess má líka geta að viss tímamót áttu sér stað í starfi frístundaheimilanna núna í mars þegar gefin voru út markmið og viðmið í fyrsta sinn um gæði starfs á frístundaheimilum fyrir sex til átta ára börn. Þessi viðmið voru gefin út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Eitt af aðalleiðarljósunum þar er að bjóða öllum upp á þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi án aðgreiningar. Ég tel að með því að gefa út þessi viðmið aukum við aðgengi barna og ungmenna að skipulögðu frístundastarfi.
Virðulegi forseti. Hvað varðar lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda í leik-, og grunn- og framhaldsskólum þá kveða þau á um að til þess að sinna kennslu í grunnskólum þurfi viðkomandi að hafa leyfisbréf til kennslu. Menntun íþróttakennara í háskólum landsins hefur að stórum hluta leitt til þess að þekkingargrunnurinn er mjög breiður. Ég tel að sú menntun sem íþróttakennarar hafa boðið upp á sé mjög góð og starf þeirra farsælt.
Hvað varðar það hvort ég ætli að stuðla að frekari rannsóknum á hreyfingu og svefnvenjum barna og ungmenna til þess að fá betri vitneskju um málið hef ég óskað eftir því að fá skýrari mynd af stöðu þeirra barna og ungmenna sem hafa annað móðurmál en íslensku, til þess að átta mig á aðgengi þeirra að íþróttastarfi. Staða þessa hóps yrði þá skoðuð í samanburði við jafnaldra þeirra sem hafa íslensku að móðurmáli og myndum við beina sjónum okkar að andlegri líðan og heilsu í skóla og utan skóla ásamt þátttöku þessara barna í skipulögðu og óskipulögðu íþróttastarfi. Eitt af því sem ég hef komist að sem mennta- og menningarmálaráðherra er að aðgengi og vitneskja um frístundastyrk er ekki öllum kunn og við þurfum að vekja athygli á því til þess að auka þátttöku þessara barna að skipulögðu íþróttastarfi.
Ég mun koma betur að næstu spurningunni þar sem tíminn er frekar naumur, virðulegi forseti.