148. löggjafarþing — 62. fundur,  28. maí 2018.

hreyfing og svefn grunnskólabarna.

445. mál
[16:15]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Þessi umræða um hreyfingu og svefn og skipulag í grunnskólum er allrar athygli verð. Fjölmargar rannsóknir staðfesta að hreyfing og þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi vinnur gegn hvers konar frávikshegðun og eflir börn og unglinga á fjölmörgum sviðum, eykur hreysti og heilbrigði, líkamlega, andlega og félagslega, og styrkir sjálfsmynd þeirra. Þá hafa þessar rannsóknir staðfest jákvæða fylgni við námsárangur.

Ég vil vísa í rannsóknir dr. Hermundar Sigmundssonar, prófessors við Tækni- og vísindaháskólann í Noregi, en niðurstöður þeirra rannsókna segja að hreyfing eykur ró og einbeitingu, sérstaklega í upphafi skóladags. Flataskóli hefur meðal annars tekið upp þetta skipulag og reynst vel.

Ég vil (Forseti hringir.) þakka þessa umræðu og fagna áhuga hæstv. ráðherra á að fara lengra með þetta mál í allri stefnumótun og skipulagi grunnskóla.