hreyfing og svefn grunnskólabarna.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við mikilvægt mál, hreyfingu og svefn barna. Ég fagna þeirri umræðu sérstaklega og fagna þeim orðum hæstv. ráðherra að hún sé tilbúin til að beita sér fyrir samtali stjórnvalda, sveitarfélaga, íþróttafélaga og skóla um hvernig betri samvinnu verði komið á um hreyfingu barna og ungmenna. Það er gríðarlega mikilvægt mál í mörgu tilliti, m.a. til að einfalda daglegt líf barnafjölskyldna, að samþætta betur skóladaginn og frístundastarfið við hreyfingu og stuðla að fleiri næðisstundum fjölskyldunnar eftir að vinnudegi allra á heimilinu lýkur.