hreyfing og svefn grunnskólabarna.
Herra forseti. Ég þakka þeim þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tel gríðarlega mikilvægt að við reynum með öllum ráðum að auka við hreyfingu í grunnskólum og fagna orðum ráðherra um að beita sér í því efni. Það getur skipt gríðarlega miklu máli vegna þess að við erum í raun að ala upp fólk fyrir næstu 80–90 árin og þurfum að huga að því snemma hvort við viljum að það sé við sæmilega heilsu þegar það kemst á efri ár.
Ég fagna einnig þeim athugasemdum sem hér hafa komið fram um að stytta vinnudag skólabarna. Þar erum við, eins og staðan er víða í dag, að tala um að börn séu í skólanum til kl. tvö, fara síðan í dægradvöl eftir þann tíma eða frístund, eins og það heitir hér í Reykjavík, og síðan fara þau í íþróttir. Vinnudagur margra grunnskólabarna getur þess vegna verið mun lengri en vinnudagur foreldra þeirra.
Þetta er óheppileg þróun. Eins og hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir kom inn á áðan skiptir verulegu máli að við reynum frekar að fjölga gæðastundum með fjölskyldunum. Ég vil í því sambandi benda sérstaklega á að slíkar gæðastundir geta einmitt verið á hreyfingu og mikilvægt að muna það.
Ég tek undir það sem hæstv. ráðherra kom inn á, það er mikilvægt að horfa til þess kostnaðar sem fjölskyldur hafa af þessu. Þar með eru taldar fjölskyldur barna sem eru tvítyngd eða af erlendum uppruna. Þar skipta frístundastyrkirnir miklu máli og skiptir miklu að kynna fyrir fólki með hvaða hætti þeir virka.
Ef við viljum (Forseti hringir.) ala upp hrausta næstu kynslóð og þarnæstu og þarnæstu þurfum við að huga að þessu snemma. Við þurfum að taka á þessum málum á öllum skólastigum og ég fagna áhuga ráðherra í því efni.