hreyfing og svefn grunnskólabarna.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma inn á eina af þeim spurningum sem ég náði ekki að klára áðan er varðar það hvernig stuðla megi að því að börn og ungmenni fái meiri svefn. Mér finnst þetta mjög góð spurning. Þetta er stór spurning. Hvernig getum við hvatt til þess inni á heimilunum að börn fái meiri svefn? Það er alveg ljóst að það er stór skýribreyta í því hvernig börnum vegnar svo í skóla. Þetta skiptir mjög miklu máli, tengist heilsu og því hvernig börnum miðar áfram.
Eitt af því sem við erum að horfa á í ráðuneytinu er að auka fræðslu markvisst um notkun á tækjum og miðla því til nemenda. Tölvunotkun hefur aukist, við sjáum það öll, aðgengi að þeim. Við þurfum að koma betur inn á það, skólayfirvöld og mitt ráðuneyti, hvernig við getum miðlað upplýsingum til foreldra og barna um það hve miklu máli þetta skiptir.
Virðulegur forseti. Það vill þannig til að mikið hefur verið rætt um mikilvægi íþrótta í samfélögum alveg frá því að Forn-Grikkir og Sókrates voru að fjalla um þennan málaflokk. Þeir voru að hugsa um fyrirmyndarríkið. Mikil áhersla var lögð á gott aðgengi að íþróttum og tónlist því að það fælist svo mikil örvun í að stunda báðar greinar. Þetta skiptir mjög miklu máli.
Við sjáum það líka með hækkandi lífaldri þjóða að þá er enn mikilvægara að við förum að huga að þessu mjög snemma. Í mínum huga skiptir aðgengi að íþróttum mjög miklu máli og að tónlist. Við eigum að stuðla að því að það sé sem greiðast.