148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 839, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni, og á þskj. 912, um krosseignatengsl í sjávarútvegi, frá Þorsteini Víglundssyni. Frá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 840, um aðgengi fatlaðs fólks, frá Vilhjálmi Árnasyni. Frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 915, um vefjagigt, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur. Loks frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 919, um mengunarhættu vegna saltburðar og hættulegra efna í nágrenni vatnsverndarsvæða höfuðborgarsvæðisins, frá Ólafi Ísleifssyni, og á þskj. 958, um styrki til verkefna og rekstrar á málefnasviði ráðherra, frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur.