148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Utanríkisráðherra sagði í þessum ræðustól fyrir nokkru að til þess að viðhalda óbreyttum vexti í hagkerfinu þyrftum við að auka útflutningsverðmæti okkar í framtíðinni um 1 milljarð á viku. Það þarf nokkuð til. Og það vantar ekkert á að menn svari kallinu. Á dögunum fór ég eins og oft áður um Vestfirði. Lífið er þar gott og ánægjulegt að hitta mann og annan. Þó er vel merkjanlegur sá andi meðal íbúanna fyrir vestan að staða þeirra og varnarbarátta sé ekki metin af sanngirni eða skilningi. Í sögulegu samhengi hafa Vestfirðingar verið veitendur, verið sjálfbjarga, viljað það og getað það. Ný atvinnugrein er á hraðri uppleið á suðurfjörðum Vestfjarða. Laxeldi er nú í fjórum fjörðum allt norður til Dýrafjarðar.

Í Ísafjarðardjúpi stendur hins vegar hnífurinn í kúnni. Hælarnir eru settir niður, búin eru til skyndimódel og líkön sem torvelda markmið heimamanna um að hefja hæga og markvissa uppbyggingu, sem þó er reyndar löngu hafin því að gamalgróið útgerðarfyrirtæki hefur um árabil stundað fiskeldi á þessu svæði. Þeir vilja fá möguleika til að vinna að þessu áfram án illskýranlegra tafa. Þau fyrirtæki sem koma að laxeldi kalla eftir skýrri löggjöf, regluverki og alvörueftirliti en á það skortir verulega eins og dæmi sýna.

Enn er líka á reiki hvernig gjaldtöku verður háttað af sameiginlegri strandsjávarauðlind. Þarna eru stjórnvöld með buxurnar á hælunum og á meðan fá hindurvitni, stóryrði og rangfærslur að óma um allt samfélagið.

Útflutningsverðmæti afurða laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum nálgast 10 milljarða á þessu ári. Til samanburðar eru heildarverðmæti hefðbundinna sjávarfanga um 110 milljarðar. Þetta skiptir máli. Það skiptir miklu að við sköpum trausta umgjörð (Forseti hringir.) um þessa grein sem byggir á fagmennsku, vísindum, óyggjandi rannsóknum, varfærni og sanngirni gagnvart (Forseti hringir.)fólki í byggðarlögunum. Þarna hafa stjórnvöld hlutverki að gegna og þau þurfa að taka sig á.