148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Ríkisstjórnin sem tók við fyrir liðlega hálfu ári boðaði mikla sókn í geðheilbrigðismálum. Þrátt fyrir fögur fyrirheit berst þingmönnum nú daglega neyðarkall frá Hugarafli, samtökum notenda með geðræna erfiðleika.

Herra forseti. Það er fólk á öllum aldri sem þarf að glíma við erfiðleika af því tagi sem hér eru gerðir að umræðuefni, en ekki síst á það við um ungt fólk. Á undanförnum árum hefur starf geðheilsuteymisins og Hugarafls með ungu fólki eflst sérstaklega. Brautryðjendastarf geðheilsuteymisins og Hugarafls er í samræmi við alþjóðlegar áherslur í þessum málaflokki.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins ákvað síðastliðið haust að leggja niður geðheilsuteymið án rökstuðnings. Leitað hefur verið til heilbrigðisráðherra sem hefur ákveðið að efla sérhæfða þjónustu í heilsugæslu við fólk með geðrænan vanda og voru því bundnar miklar vonir við að ráðherra myndi vilja byggja á reynslu og árangri geðheilsuteymisins og tryggja því starfsskilyrði. Ítrekað hefur verið fundað með ráðherrum heilbrigðis- og félagsmála, velferðarnefnd Alþingis o.s.frv., en án árangurs þrátt fyrir að þessir aðilar hafi í raun verið grátbeðnir um að hlífa úrræðinu eins og komist er að orði í því neyðarkalli sem þingmenn munu kannast við.

Því fylgir mikil ábyrgð að leggja niður úrræði sem hefur verið árangursríkt og óskiljanlegt að það sé gert án þess að fyrir liggi rannsóknir eða rökstuðningur þar sem sýnt sé fram á að úrræðið skili ekki þeim árangri sem því er ætlað.

Þá er það einnig mikil ábyrgð, herra forseti, að leggja niður úrræði sem fjöldi fólks með geðræna erfiðleika treystir á.

Ríkisstjórnin verður að reka af sér slyðruorðið, eyða (Forseti hringir.) án tafar óvissu um framtíð geðheilsuteymisins og samstarfi þess við Hugarafl til hagsbóta fyrir einstaklinga með (Forseti hringir.) geðræna erfiðleika og fjölskyldur þeirra.