Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í íslensku efnahagslífi ríkir svikalogn um þessar mundir. Þrátt fyrir að vel ári á svo marga mælikvarða horfum við engu að síður fram á þann veruleika að erfiðleikar kunni að vera fram undan. Gengi krónunnar hefur styrkst langt úr hófi fram. Við erum orðin eitt dýrasta hagkerfi heims. Kaupmáttur okkar í útlöndum er langt umfram þau efnahagslegu verðmæti sem við sköpum á hverjum tíma. Nýlega var birt könnun á samkeppnishæfni landsins þar sem við féllum um fjögur sæti, úr því 20. í 24., sem er mesta fall okkar í samkeppnishæfni frá hruni.
Það hefur verið algjörlega óbrigðult í þróun íslensks efnahagslífs að þegar við erum komin langt fram úr okkur hvað varðar verðlagningu okkar á alþjóðavísu, þ.e. í gengisskráningu krónunnar, og samkeppnishæfni, þá er stutt í leiðréttinguna. Við þurfum að fara að búa okkur undir að sú staða leiðréttist, þ.e. við munum þurfa að búa okkur undir harðari tíð.
Það er því með ólíkindum að horfa upp á það að á sama tíma og við erum gagnrýnd fyrir einstaklega mikla óskilvirkni í rekstri hins opinbera er meginmarkmið ríkisstjórnar að auka ríkisútgjöld án nokkurra mælanlegra markmiða um árangur. Þegar við erum gagnrýnd fyrir allt of hátt og óstöðugt gengi, sem grefur undan samkeppnishæfni útflutningsatvinnugreina okkar, hefur ríkisstjórnin engin áform um það hvernig taka eigi á þeim vanda — sem er síendurtekinn, hann er ekki nýr af nálinni, við höfum glímt við hann um áratugaskeið.
Þegar kemur að samkeppnisumhverfi okkar, skilvirkri samkeppni í atvinnulífinu, einfaldara regluverki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki ekki hvað síst, skilar ríkisstjórnin enn og aftur algjörlega auðu. Þetta gengur ekki lengur, á þessum vanda verðum við að taka.