148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Jöfnuður og traust.

[14:09]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Í nýlegri skýrslu frá norrænu ráðherranefndinni kemur fram að á Norðurlöndunum eru þeir ríku að verða ríkari og fátækir eru að verða fátækari, sem er óheillaþróun. Ójöfnuður er að aukast og afkoma almennings að versna. Traust innan norrænna samfélaga hefur mælst meira en í öðrum löndum. Í samfélögum þar sem jöfnuður er meiri er traust á milli manna meira og til stofnana samfélagsins einnig. Það er ekki aðeins aukið traust sem fylgir auknum jöfnuði heldur einnig meiri sátt, meiri samheldni, meiri hamingja, betri heilsa og færri glæpir. Stjórnvöld ættu því að leita allra leiða til að auka jöfnuð og setja slík mál í algjöran forgang.

Hér á Íslandi stóð hið íslenska jafnaðarsamfélag í mestum blóma frá seinni heimsstyrjöld og fram á níunda áratug síðustu aldar, eins og vel er greint í bókinni Ójöfnuður á Íslandi eftir Stefán Ólafsson og Arnald Sölva Kristjánsson, en eftir það fór að síga á ógæfuhliðina.

Aukinn ójöfnuð á árunum fyrir hrun má að mestu leyti skýra af miklum vexti fjármagnstekna hjá efstu tekjuhópunum, en um þriðjungur ójafnaðar stafaði af breyttri stefnu stjórnvalda í skatta- og bótamálum. Jöfnuður jókst aftur eftir hrun vegna þess að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur beitti skatta- og bótakerfinu til jöfnunar og fjármagnstekjur skruppu saman.

Nú er þróunin hér á landi á hraðri leið til ójafnaðar eins og í hinum norrænu ríkjunum og því ástæða til að stjórnvöld bregðist við af festu. Bætur og opinber stuðningur ættu að hækka í takti við launaþróun. Forðast ætti greiðsluþátttöku fyrir velferðarþjónustu. Gjaldheimta af veiku fólki er hvergi á Norðurlöndum jafn mikil og hér á landi. Við ættum að hækka fjármagnstekjuskattinn og leggja skatt á stóreignir.

Fjármagnstekjuskatturinn var að vísu hækkaður um síðustu áramót, um tvö prósentustig, og áætlaðar tekjur af þeirri hækkun eru um 1,4 milljarðar kr. á þessu ári. En á sama tíma er boðuð endurskoðun á skattstofninum í þá veru að í raun verður sá ábati að engu fyrir ríkissjóð. Hækkunin var algjörlega til málamynda og hefur nánast ekkert að segja til þess að auka jöfnuð hér á landi.

Ójöfnuður, hvort sem litið er til tekna eða eigna, er að aukast. Ef stjórnvöld vilja jafna leikinn til að auka samfélagslegt traust þarf að beita bæði skatt- og bótakerfinu. Skattkerfisbreytingar sem skiptu máli væru fleiri skattþrep, hærri persónuafsláttur, þrepaskiptur fjármagnstekjuskattur og stóreignaskattur á umtalsverðar eignir umfram íbúðarhúsnæði fólks. Aukið vægi barnabóta og húsnæðisbóta eru önnur mikilvæg jöfnunartæki sem stjórnvöld gætu beitt. Ef ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætlar að draga úr ójöfnuði verður að lyfta því þaki sem sett hefur verið á barnabætur í fimm ára fjármálaáætlun ríkisins og auka húsnæðisbætur til mikilla muna.

Helsta niðurstaða skýrslunnar frá norrænu ráðherranefndinni er að vaxandi ójöfnuð á Norðurlöndum megi skýra með því að bætur hafi ekki hækkað í takt við laun undanfarin ár. Tekjutengingar bóta eru mun meiri hér á landi en í hinum norrænu ríkjunum og barnabætur byrja að skerðast hér, samkvæmt ákvörðun núverandi ríkisstjórnar, langt undir lágmarkslaunum.

Hæstv. forsætisráðherra hefur um árabil lagt áherslu á jöfnuð í ræðum sínum og tillögugerð á Alþingi. Ég veit hvar hjarta hennar hefur slegið hvað það varðar. En ef ekkert á að aðhafast núna þá skipta fyrri orð engu máli.

Ég er ekki að kalla eftir fleiri nefndum til að leita leiða, ekki að tala um vinnu við hugsanlegar tillögur og ekki um fyrirhugað samráð við verkalýðsfélög. Ég spyr um aðgerðir sem ríkisstjórnin sjálf ætlar að fara í, ef þær eru einhverjar, til að auka jöfnuð í íslensku samfélagi og fá um leið alla þá kosti sem fylgja, aukið traust, aukna sátt, bætta heilsu og færri glæpi. Til hvaða aðgerða innan skatta- og bótakerfisins hyggst ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur grípa til að auka jöfnuð á Íslandi?

Gjaldtaka innan velferðarkerfisins er meiri hér á landi en í hinum norrænu ríkjunum og í raun skattur á þá sem standa veikast fyrir. Mun ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur draga úr þeirri gjaldtöku?

Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra til fullyrðingar sem þessarar: Með því að hækka barnabætur og vaxtabætur og sjá til þess að fleiri fái slíkar bætur (Forseti hringir.) og með því að hækka bætur almannatrygginga er verið að bótavæða samfélagið?