jöfnuður og traust.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Jöfnuður er hugtak sem við tölum mikið um og er gjarnan notað hér í þessum þingsal við hin ýmsu tækifæri. Við tölum um jöfnuð þegar kemur að því að jafna tekjur milli hópa o.s.frv. Það er hins vegar svolítið sérstakt að hlusta á talsmenn ríkisstjórnarinnar tala um jöfnuð því að ekki virðist vera einhugur á þeim bænum um hvort jöfnuður hafi verið að aukast, hvort jafna þurfi bil milli manna meira en er í dag eða hvort Ísland standi fremst í fylkingu, eða mjög framarlega í það minnsta, þegar kemur að jöfnuði í heiminum. Þessi sundurleiti hópur sem ríkisstjórnin er og hennar fylgitungl, — afsakið, ég biðst afsökunar á þessu, herra forseti — þ.e. þingmenn hennar, virðist ekki tala út frá einni stefnu eða einni línu þegar þeir tala um jöfnuð.
Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig standi á því að hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra eru ósammála um hvort jöfnuður hafi aukist á Íslandi eða ekki. Hvernig stendur á því að forsætisráðherra sagði fyrir ekki svo mörgum mánuðum að jöfnuður þyrfti að aukast á Íslandi þar sem ójöfnuður væri til staðar? Forsætisráðherra sagði svo stuttu síðar í stefnuræðu að mikill jöfnuður væri á Íslandi og við værum þar fremst í flokki. Um hvað er verið að ræða? Er ríkisstjórninni algjörlega fyrirmunað að koma sér saman um hvort jöfnuður er á Íslandi, hvort hann þurfi að batna eða hvort hann sé nægur í samanburði við önnur ríki?
Þetta er eitt af mörgu sem hefur komið upp og mun koma upp að sjálfsögðu þegar við erum með ríkisstjórn sem er mynduð yfir svo breitt spektrúm, ef ég má orða það þannig, herra forseti; þegar flokkar koma sér saman um það eitt að mynda ríkisstjórn. Það væri mjög gott fyrir okkur hér, og ég ítreka þá aftur spurningu mína, að ráðherrar, sér í lagi forystumenn ríkisstjórnarinnar, kæmu sér saman um það hvernig þeir líta á jöfnuð á Íslandi. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra aftur: Hver er meiningarmunurinn á milli ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráðherra, og forsætisráðherra þegar kemur að jöfnuði?