148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Jöfnuður og traust.

[14:22]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu. Hún er þörf og góð. Ég hef oft heyrt hana tala um ójöfnuð úr þessum ræðustól. Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur að velta því fyrir okkur hvernig við getum á hverjum degi búið til samfélag sem er fallegra og betra fyrir okkur öll. Það samfélag byggir líka svolítið á okkar eigin framlagi, að við séum ekki alltaf að benda á aðra, alltaf að spyrja hvað aðrir geti gert fyrir okkur. Við þurfum líka að velta því fyrir okkur hvert okkar framlag er til samfélagsins. Mér finnst endalausar kröfur á það að ríki og sveitarfélög hafi opna skóla allan sólarhringinn svo börnin geti verið þar sem mest að heiman. Þurfum við ekki aðeins að breyta því líka? Þurfum við ekki að skoða það, líta í eigin barm hvað við getum gert fyrir foreldra okkar sem eru komin á dvalarheimilin, ekki bara alltaf benda á dvalarheimilin og starfsfólkið þar heldur hvað við getum gert sjálf?

Það er alltaf verkefni okkar að reyna að minnka byrðarnar á göngunni. Það er ekki að byrja núna. Það gerðu hirðingjar og pílagrímar á öldum áður. Þeir undirbjuggu lífið með því að minnka byrðarnar sem við bærum gegnum lífið. Það er auðvitað verkefni okkar hér að auka velferð, gera atvinnulífinu kleift að borga þannig laun að bætur eigi að verða nánast óþarfar. Það væri auðvitað í hinum fullkomna heimi.

Þessi umræða er eins og ég sagði mjög þörf og hún er góð. Við þurfum að finna þann flöt að allir í þessu landi búi við sömu tækifæri til að mennta sig sem er grundvöllur framfara og nýsköpunar, eins og hæstv. forsætisráðherra kom svo réttilega inn á í sinni góðu ræðu. Ég ætla enn og aftur að ítreka það og þakka framsögumanni fyrir þessa umræðu.