jöfnuður og traust.
Virðulegi forseti. Leiguverð hefur hækkað um 85% frá því árið 2011. Á sama tíma hefur íbúðaverð hækkað um 95%. Meðallaun hafa einnig hækkað um u.þ.b. sama hlutfall, 85%, á sama tíma. Meðaltal segir auðvitað ekki allt en miðgildið hefur líka hækkað um u.þ.b. 85%. Staðalfrávikið hefur hins vegar aukist miklu meira.
Það sem þetta segir okkur er að meðaltal og miðlaun hafa nokkurn veginn haldið í við leiguverð en hins vegar hefur dregið í sundur með þróun íbúðaverðs og þróun launa og síðan hvernig staðalfrávikið reiknast út í það. Það er orðið mun erfiðara núna fyrir launafólk að fjárfesta í íbúð. Ofan í allar þessar tölur, staðalfrávik o.s.frv., kemur Gini-stuðullinn sem talað hefur verið um, sem sýnir ekkert rosalega miklar breytingar á því hvernig jöfnuður hefur þróast á Íslandi á undanförnum árum. Hann nær til ársins 2016, samkvæmt því sem ég sé á vef Hagstofunnar, en skortur er á uppfærðum gögnum. Við skoðum Gini-stuðulinn eitt og hálft ár aftur í tímann og á þeim tíma hefur leiguverð hækkað í kringum 27% og íbúðaverð u.þ.b. 13%. Margt hefur sem sagt breyst á þeim tíma en gögnin sem við þurfum til að vita hvaða áhrif breytingarnar hafa eru úrelt. Þetta eru upplýsingar sem við þurfum til að fylgjast með heilsu samfélagsins og þær eru úreltar. Það er eins og ef læknir notaði hjartalínurit úr sjúklingi frá því 2016 til að taka ákvarðanir um meðferð í dag. Við verðum að gera betur.
Spurningin um traust í ræðu málshefjanda er líka áhugaverð. Nú hef ég fjallað um traust í stjórnmálum undanfarið og lengi, og tengi vantraust ekki nauðsynlega við ójöfnuð, þótt ég taki vissulega undir að hann sé mikilvægur hluti hans. Hinn hlutinn er hegðun ráðamanna og virðing þeirra gagnvart lögum og reglum eða skortur á virðingu. Hér er t.d. talað um mikið fjármagn í átt til jafnaðar í fjármálaáætlun, en á sama tíma er engin stefnumótun um í hvað á að nota þá peninga og hvaða markmiðum á að ná. Um það kvartaði meira að segja hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Óli Björn Kárason, í umræðum um störf þingsins fyrr í dag.
Við vinnum okkur inn traust með því sem við gerum — (Forseti hringir.) ekki bara því sem við segjum eða þykjumst segja eða lofum í kosningum heldur því sem við gerum.