148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Jöfnuður og traust.

[14:28]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa þörfu umræðu sem aldrei er of oft tekin hér í ræðustóli Alþingis. Ég fæ fjölmörg símtöl á hverjum einasta degi þar sem ég er beðin um hjálp. Á Íslandi búa enn þá tæplega 10% barna við mismikinn skort. Ég er orðin þreytt á að hlusta á forsvarsmenn fjórflokksins tala um fátæktina sem þeir stuðluðu að sjálfir. Þeir hafa allir verið við völd og einungis fest þá verst settu enn frekar í fátæktargildrunni. Ef einhver raunverulegur vilji væri til að útrýma fátækt á Íslandi myndum við nú á þessu þingi byrja t.d. á því að afnema krónu á móti krónu skerðingu, hætta að skattleggja fátækt og við myndum hækka lágmarkslaun þannig að þau tryggðu fólki í það minnsta fæði, klæði og húsnæði.

Þessi mál hafa verið á dagskrá þingsins síðan 14. desember síðastliðinn. Spurningin er einungis sú hvort það sé einhver raunverulegur vilji til úrbóta. Svarið er náttúrlega einfalt í mínum huga: Nei, það akkúrat enginn vilji til þess. Þinginu lýkur á fimmtudaginn í næstu viku.

Ég og minn ágæti samflokksfélagi höfum kallað þetta mannvonskukerfi, vegna þess að staðreyndin er sú að t.d. almannatryggingalögin eru síðan 2007, þau eru nr. 100/2007. Það eru tæplega 20.000 einstaklingar, öryrkjar, sem þurfa að reiða sig á afkomu þessa kerfis.

Verið hefur mikið ákall um breytingar. Ákallið er hávært en við lokum svo gjörsamlega eyrunum (Forseti hringir.) að það er dapurt frá því að segja að maður skuli vera búinn að vera hér síðan um miðjan desember og akkúrat engu hafa getað áorkað.

Ég segi bara: Við og þið, við öll ættum að skammast okkar og skammast okkar og skammast okkar aftur.