148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

jöfnuður og traust.

[14:38]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka upphafsmanni þessarar umræðu fyrir hana. Hún er góð. Mig langar að ræða aðeins, eins og ágætur kollegi minn hér á undan, um þann ójöfnuð sem er milli aldurshópa í þessu þjóðfélagi. Það var eitt sem vantaði bæði inn í umræðuna af hans hálfu og af hálfu flutningsmanns, og eiga þau það áhugaleysi sameiginlegt með flokki hæstv. forsætisráðherra, en það er vaxtastigið í landinu. Hvernig á ungt fólk að geta haslað sér völl og hvernig á ungt fólk að geta komið sér upp þaki yfir höfuðið miðað við það vaxtaokur sem tíðkast á Íslandi og miðað við þann verðtryggingargrunn sem við notum?

Það vill svo til að nú liggur inni í hv. efnahags- og viðskiptanefnd frumvarp sem Miðflokkurinn lagði fram í vetur um afnám húsnæðisliðar úr vísitölu. Þegar 1. umr. fór fram um það mál í þingsal nýlega tóku hvorki fulltrúar Samfylkingarinnar né Vinstri grænna til máls um það mál sem er eitt stærsta hagsmunamál ungs fólks á Íslandi. Það sem er nauðsynlegt að gera til að bæta aðstöðu ungs fólks og aðstöðumuninn er bæði að vextir lækki og að verðtrygging hverfi sem mest úr lánsútreikningum og síðan að greiðslumati verði breytt með þeim hætti að ungt fólk, vel menntað, vel launað, með mikla tekjumöguleika, geti keypt sér þak yfir höfuðið þó að það hafi lítinn höfuðstól. Þess vegna finnst mér vanta inn í þessa umræðu vaxta- og verðtryggingarþáttinn. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera til að vaxtakjör í landinu (Forseti hringir.) geti orðið með líkum hætti og í nágrannalöndunum þannig að við séum samkeppnisfær um það að ungt fólk setjist hér að til frambúðar?