Jöfnuður og traust.
Frú forseti. Þegar við ræðum í þessum þingsal um jöfnuð eða skort þar á hljótum við að leitast við að tala um jöfnuð í samhengi við sem flesta sem í þessu samfélagi búa. Þegar talað er um jöfnuð á Íslandi er langoftast talað um og horft til meðaltals launa, meðaltals í tengslum við eignaskiptingu, meðaltals í sparnaði o.s.frv. Vandamálið við það er að meðaltal, sér í lagi við útreikning launa, gefur ekki rétta mynd af meðallaunum fólks vegna þess að í útreikninginn eru tekin með öfgakennd frávik sem skekkja alla myndina. Mun eðlilegra væri að notast við útreikning miðgilda í þessum málum. Þegar það er gert fæst mun skýrari mynd af stöðunni eins og hún snýr að stærstum hluta þjóðarinnar.
Það er mjög mikilvægt þegar við ræðum um jöfnuð að forsendurnar og skilgreiningarnar séu sem réttastar og nákvæmastar til að hægt sé að hugsa í lausnum og finna góðar lausnir.
Því langar mig að beina því til hæstv. forsætisráðherra hvort þetta sé eitthvað sem hún hafi hugsað út í eða muni í kjölfar þessarar stuttu ræðu minnar taka til greina.