Jöfnuður og traust.
Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur, þessa mikilvægu og þörfu umræðu um jöfnuð. Jafnframt þakka ég innlegg og svör hæstv. forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar.
Það er rétt, sem fram kemur hér, og er almennt viðurkennt að jöfnuður er hverju samfélagi mikilvægur og traust er talið meira manna í millum í samfélagi þar sem jöfnuður er meiri. Hagsæld er að sama skapi almennt talin meiri þar sem jöfnuður er meiri og vaxandi misskipting gæða álitin hindrun vaxtar og tækifæra og jafnvel ógn við frið og lýðræði.
Jöfnuður er í senn félagslegt og hagfræðilegt viðfangsefni. Það er mikilvægt, þegar við skoðum jöfnuð, að hafa í huga þau viðmið eða mælikvarða sem við setjum fram þegar við metum jöfnuð, skiptingu gæða, hvort heldur mælt í tekjum eða eignum, og lýðfræðilegar breytur sem hafa þar áhrif. Þegar kemur að launum er jöfnuður hvað mestur á Íslandi borið saman við önnur lönd Evrópu.
Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar frá því í desember, dreifingu ráðstöfunartekna og Gini-stuðlinum, er Ísland með minnsta ójöfnuð í Evrópu árið 2016. Að meta eignajöfnuð getur verið snúið og við deilum gjarnan um hvort hann er mikill eða lítill. En samanburðurinn skiptir máli hér. Til eru tölur sem segja eignaójöfnuð hér minnstan í samanburði við Norðurlöndin, en þar er hann meiri en víða annars staðar. Aðrar tölur segja okkur að eignaójöfnuður sé mikill í alþjóðlegum samanburði.
Þrátt fyrir allt er jöfnuður mikilvægur fyrir hagsæld og því stöðugt viðfangsefni. Ég fagna áformum og aðgerðum hæstv. ríkisstjórnar í átt til aukins jafnaðar, þau sem hæstv. forsætisráðherra fór hér yfir og birtast meðal annars í ríkisfjármálaáætlun. Sérstaklega vil ég nefna breytingar á tekjuskattskerfinu, aukinn stuðning við barnafjölskyldur, við leigjendur og lækkun á greiðsluþátttöku sjúklinga.