Afbrigði um dagskrármál.
Hæstv. forseti. Það er ríkisstjórninni til vansa að koma með mál af þessari stærðargráðu inn í þingið þegar svo skammt er eftir af þingtímanum. Þótt ekki sé hefð fyrir að greiða atkvæði gegn því að afbrigði séu veitt lít ég svo á að þetta mál sé fyrst og fremst lagt hér fram til kynningar. Ég get ekki trúað því að ríkisstjórnin ætli sér að keyra það í gegnum þingið á þeim tíma sem eftir er þangað til á fimmtudaginn í næstu viku.
Í þeirri trú, að þetta mál sé lagt fram til kynningar en ekki afgreiðslu, mun ég styðja að afbrigði séu veitt.